|
|
04.06.2008 19:34:11 / hanna
já. hvað varð um að vera duglegar haa stelpur? Ég hef reyndar afsökun því ég hef ekki verið að gera neitt skemmtilegt sem er hægt að slúðra um eða taka myndir af...En ekki þið! sérstaklega ekki þú Lena hver fór á sjómannadagsball og svona skemmtó.. hefðir nú getað tekið myndir þar óþekktaranginn þinn Sunna fór reyndar líka á sjómannadagsball en hún á enga myndavél svo ég fyrirgef henni eða ég fyrirgef ykkur báðum.en ég nenni samt svoo ekki að blogga.þannig við heyrumst bara seinna bæbæ

»
06.10.2007 17:24:26 / sunna
Þá er búið að læsa síðunni, og hún verður þannig í einhvern tíma, ég er orðin svo þreytt á rifrildum á netinu. Eins og einhver sagði, að rífast á netinu er eins og að keppa í ólympíuleikum fyrir fatlaða; sama hvort þú vinnur eða tapar, þú ert samt fatlaður. En nóg um það, prófin eru byrjuð svo síðan verður líklega dulítið dauð á meðan, og um leið og prófin eru búin ætlum við að skella okkur til Reykjavíkur og versla pínu og skemmta okkur, þá gætu verið nokkar myndir á leiðinni  Annars hef ég ekki mikið að segja nema, finnst ykkur að það eigi að breyta græna kallinum í grænu konuna??
»
05.10.2007 21:53:32 / gellur
SEINASTA BLOGGI VAR EYTT ÚTAF ÓÞARFA DRAMA OG LEIÐINDUM EF ÞAÐ KEMUR DRAMA Í SKOÐANIR Á ÞESSU BLOGGI LÍKA VERÐUR SÍÐUNNI LÆST OG VINIR&FJÖLSKYLDA FÁ BARA LYKILORÐ 
»
25.09.2007 11:15:53 / hanna
when your body has had enough of me and I'm laying flat out on the floor, when you think i've loved you all I can I'm gonna love you a little bit more <3 Halló tralló! Nú erum við systurnar komnar heim úr borg óttans. Ógó gaman í brúðkaupinu. Ingunn söng með Luxor strák, og við vorum sko alveg búnar að setja okkur í höstl stellingarnar svo við gætum krækt í svona hot söngvara... En svo var hann ekki svo hot þegar við sáum hann og held líka að ég hafi séð glitta í giftingarhring.. svoo við hættum við, enda alveg fullkomlega ánægðar með kallana sem við höfum hérna heima Við versluðum alveg heilan helling. Ég er sko stoltust í heimi af því að hafa sleppt að kaupa mér skó til þess að gefa andra gjöf. Ég held að ég sé eiginlega bara besta kærasta á landinu, nú eða bara í heiminum! 
Talandi um góðar kærustur og góða kærasta þá er Andri að koma heim í dag, finally! Og við eigum örugglega eftir að eyða öllum tímanum í kúr og knús svo það er bara bann sett á að trufla okkur og hana nú! Svo er Laufskálaréttarball um helgina og maður er svona að pæla í að fara.. een ég er samt ekki alveg viss. Bróðir Elísu ætlar að koma í heimsókn, svo þau tvö skella sér á ball og það þarf nú ekki einu sinni að tala um að sunna&siggi fari á ball. En andri litli brotni þarf nú að passa sig vel.. svo að ef hann vill ekki fara sé ég til hvort ég fer.. eeen ég nenni ekki meiru! love love :* 
uppáhalds ;** 
litli prakkari :*
»
19.09.2007 20:08:06 / sunna
Ég ákvað að blogga svona í tilefni þess að ég sit hérna ein heima og bíð eftir að Siggi sé búinn að vinna svo ég geti farið að hangsa með kæró... Ég er í BLEIKU tölvunni hennar Hönnu, vegna þess að tölvan mín ákvað að bila og er í viðgerð í Reykjavík.. Ég er ekki mjög sátt skal ég segja ykkur. Það er einhver hönnunargalli á þessum HP tölvum sem kemur þannig fram að hleðslutækið brýtur einhver tengi inn í tölvunni og hún hættir að hlaða sig. Og það sökkar. En hún ætti vonandi að endast í annað ár eftir þessa viðgerð, fjandinn hafi það. Ég þarf líka að skrifa ritgerð í Eðlisfræði og Dönsku, en neei, ég get ekki byrjað fyrr en ég fæ tölvuna mína! Úff, þetta er erfitt líf. En nóg um þessa tölvu. Ég er að fara til Reykjavíkur á föstudaginn, í brúðkaup hjá Láka og Svönu!: ) Það verður alveg pottþétt hörkustuð! Ég þarf líka að eyða nokkurþúsundum í að versla, því ég hef ekkert farið til reykjavíkur í sumar og varla keypt mér eina einustu flík! Ekki svo gott. Og já.. Varið ykkur á stalkerum á gráum bílum sem rúnta fram og til baka fyrir framan húsin ykkar: ) jæja.. Svo er það bara Laufskálaréttarballið þarnæstu helgi, er það ekki? Allt í lagi sjáumst bless. Ps. Þið sem kusuð hamstur í seinustu skoðanakönnun... eruði fífl??? auðvitað er ljónið konungurinn!
»
17.09.2007 10:50:11 / lena
www.blog.central.is/good_times Lena og Brynja vistarbúar komnar með skóla síðu!! verður fjörug í vetur og myndir af vistinni og myndir myndir myndir og fjör og læti !!!   
»
14.09.2007 12:51:23 / hanna
 hæhæ ég ákvað að blogga þar sem ég hef ósköp lítið að gera í augnablikinu.. Helgin var góð. Ég&andri vorum bara í chillinu. Ekkert áfengissull! bara kúr og vídjó. Fórum á akureyri og ég verslaði fyrir einn lítinn 30þúsund kall hefði nú örugglega eytt meiru ef að búðirnar hefðu ekki allar lokað klukkan fjögur Keypti bara tvö skópör og það er lítið miðað við hvað ég hefði keypt venjulega fyrir þessa upphæð af peningum, svo að ég var mjög ánægð með mig Fórum svo í bíó eins og alvöru rómantískt par.. vorum reyndar bæði orðin ógeðslega pirruð á að standa þarna niðri og bíða eftir að salurinn yrði opnaður.. sem var margar,margar mínútur yfir 6!! Á sunnudeginum fórum við svo í heimsókn í sveitina. Mjög gaman  Um helgina eru pabbi&andri að fara í veiðitúr saman. Ég,mamma&sunna ætlum nú kannski að kíkja á þá eftir vinnu hjá mér þar sem við erum svo miklir lukkugripir. Það er alveg bókað mál að það veiðist ekkert án okkar Svo er stefnan auðvitað tekin á ball á blööönduósi á laugardagskvöldið. Þeir sem ætla í melsgil eru nöllar ;p Andri litli kemst samt ekki því hann er veikur í hendinni... svo að ég verð bara þriðja hjólið með sunnu&sigga... ég treysti á þig að mæta greipur! ;* en já.. mæta í skólann eftir tuttugu mín. ætla að fá mér eitthvað í svanginn. bæ looovers. http://blog.central.is/andrioghanna?page=viewPage&id=1719170 myyyyndir frá rútsstöðum 
»
13.09.2007 18:13:25 / elísa
Halló allir.. ég ákvað að blogga því ég hef ekkert betra að gera heldur en að liggja alein upp í sófa VEIK!!! ohh ég hata flensur, neyddist til að senda ívar í vinnuna fyrir mig sem þýðir að ég þarf að vinna tvær stubbavaktir í næstu viku ég er nú samt að hressast og ætla mér í skólann á morgun og svo ætla ég líka suður eftir skóla að hitta uppáhalds frænkuna mína hana Gunnhildi og uppáhalds Systur mína sem á afmæli á morgun annars er lítið búið að vera í gangi hjá mér og sófinn er búinn að vera mjög vingjarnlegur síðustu 3 dagana ég virðist líka búin að vera vingjarnleg því allt ruslið og draslið, uppvaskið og óhreini þvotturinn færist alltaf nær mér það er bókstaflega allt komið í kringum sófann! og ég sem hef enga orku til að ganga frá þessu helvítis rusli. Æjj þetta er orðið alltof biturt blogg, ég ætla bara að fara að sofa eða e-ð...ætla að skella nokkrum myndum af uppáhalds frænkunni minni hérna inn 

 æjj hún er svo mikið krútt;* Elísa Ósk
»
10.09.2007 12:58:27 / sunna
»
07.09.2007 12:54:36 / lena
Langaði bara að deila hérna með ykkur eina mesta ógeðslega einmannalega hösli sem ég hef heyrt af... haldið þið ekki a Ingimar hafi verið spurður af því hvernig að það gengi með mér hahaha, og fyrst þetta var ekkert að ganga með mér þá var hann spurðu hvernig gengi með Brynju.... hahah halló við erum báðar á föstu samt er kallað a okkur að við seum druslur og eitthvað hehehe,, þið kannski fattið um hvaða glataða vinahóp ég er að tala... en þetta finnst mér bara fyndið. ein bara hot fyrir Ingimari úlalala 
æjæj... en já a mánudaginn koma fullt af myndum frá sumrinu á Skagaströnd  ógó flott og gaman! 
ein mynd af henni píu 
»
06.09.2007 15:46:24 / hanna


góð skemmtun fyrir einmanna stelpu eins og mig að fá svona líka skemmtilegt webcam haha  eeen ég verð ekki einmanna mikið lengur því andri er að koma heim í kvöld. Það verður best að hafa hann heima aftur. sökkar að hann sé að hanga þarna á ísafirði þegar ég þarf á honum að halda hérna ;] Fyrir utan það er voðalega lítið að frétta af mér. Ég&Lena vorum með sleepover í gærkvöldi. ég lúllaði inní kæró-herberginu og some idiots voru að horfa á "ég var einu sinni nörd" fyrir ofan okkur með volume-ið svo hátt stillt að ég ætlaði aldrei að geta sofnað.. enda er ég bara að DEYJA úr þreytu núna.. En annars skemmtum við okkur mjög vel yfir múmínálfunum "frænkuskrattinn hefur örugglega aldrei leyft henni að týna sveppi, svo nú notar hún tækifærið". Sunna joinaði ofcourse en sveik okkur svo fyrir kærastann(get samt ekki verið að skammast því ég hef nú gert þetta sjálf líka tíhí . Annars erum við bara búnar að vera ógó fyndnar og skemmtilegar like always Elísa gerði nýtt um sig!! kraftaverkin eru að gerast, elísa er hætt að skeina gömlu fólki og byrjuð að huga að internetinu aftur En ég er mikið að pæla í því að gera mig kannski smá sæta.. fara í sturtu og svona og svo langar mig líka að panta mér pizzu... þó ég verði örugglega að bíða þangað til sunna kemur heim svo ég geti sótt hana öðruvísi en labbandi!.. þangað til næst, góðar stundir  PÆ-JA .. stytti mér leiðir. 
ég og besta vatn á íslandi 
»
04.09.2007 11:24:10 / sunna
Veit einhver eitthvað um sögusagnir um ball á blönduósi næstu eða þarnæstu helgi?
»
02.09.2007 18:04:12 / sunna
Sitting in my room, staring at the wall, I can't believe it's happening Once so wonderful, now life's a twisted kind of reality, a fantasy Don't know where to begin
Saw your love for me vanish in a single moment of stupidity Nightmare this may be, but it is not a dream, I want to scream; a broken heart still bleeds Þá er þetta blessaða busaball búið, og það var nú svei mér mikil skemmtun í því skal ég segja ykkur Í byrjun vikunnar glöddust allir yfir því að skólinn hefði fengið nýjan Jay Leno til liðs við sig, en svo kom það bara í ljós að þessi Jay Leno var ekkert skemmtilegur! En nóg um hana, þetta var bara eitt það skemmtilegasta ball sem ég hef farið á lengi! Siggi og Teitur á rúntinum með löggunni fyrir að klifra upp brunastiga og læti! Hanna skemmti sér allt ballið við að reyna við gítarleikarann, og svo endaði hún þetta með bombu og lamdi Jay Leno, beint í hökuna Svo hélt djammið bara áfram, sáum Jay Leno þó ekkert meira þetta kvöld Þar endaði sagan sú, en hún heldur áfram á næsta balli! Svo ætluðu busarnir að lemja Sigga, og Steini glámur þar meðtaldur, en þeir þorðu síðan engu nema að rífast. Þá lét stúlli hin fleygu orð falla ; Ég get rotað ykkur alla í 4 höggum, þó þið séuð 5 ! En þetta er allt gott og blessað, sjáumst seinna..
»
29.08.2007 21:38:55 / elísa
Jæja ég hef ákveðið að gerast ofurnotandi á þessari síðu! blogga á hverjum degi og á nokkurra tíma fresti   Æjj, kannski ekki alveg svoleiðis en næstum því allavegana er mikið að gera í skókaupum hjá okkur dömunum og ekki bara skókaupum heldur líka skólanum og þá að busa Hönnu Maríu
Við Ívar keyptum okkur ljósritunarvél í gær og höfum ákveðið að selja ljósritaðar skólabækur og erum komin í mikla samkeppni við skiptibókamarkaðinn
Busavígslan er á næsta leiti og eins og áður hefur komið fram er Hanna PUSI þá fara allir og maka ógeði í hárið á Hönnu og svo detta allir í það og skella sér á ball Mikið djamm þar á ferð... heyrst hefur að Ína og Hljómsveit ætli að troða upp á balli á barnum. 
aðeins að rifja upp hvernig þetta var í fyrra Ég ætla að skella inn einum sorglegum en mjög svo fallegum texta eftir Bubba svona í lokin  Fyrir vestan er veturinn stríður vokir yfir byggð og tíminn líður. Með sólvana daga, dapurlegan róm dreymir ekki alla himnanna blóm. Vegirnir lokast, veturinn hamast, vörnin er engin, þorpið lamast. Menn horfa upp í hlíðina, sjá ekki neitt himinn og jörð renna saman í eitt.
Dag eftir dag snjónum kyngdi niður, dúnmjúk mjöll, þessi hvíti friður. Í rökkrinu þorpið sýndist svo smátt, svo fór hann að hvessa úr annarri átt.
Og með vindinum kemur kvíðinn, úti er kolsvört hríðin. Og fjallið það öskrar svo fellur öll hlíðin og húsin þau hverfa í kófið.
Eitt andartak stóð tíminn kyrr, æddi síðan inn um glugga og dyr. Hreif burt vonir, reif upp rætur, einhvers staðar engill grætur. Hvers vegna hér - menn spá og spyrja, spurningar flæða hvar á að byrja. Fólkið á þig kallar Kristur, kvölin nístir bræður og systur. Tárin eru leið til að lækna undir lífið er aðeins þessar stundir. Gangverk lífsins þau látlaust tifa og við lærum með sorginni að lifa.
Og með vindinum kemur kvíðinn, úti er kolsvört hríðin. Og fjallið það öskrar svo fellur öll hlíðin og húsin þau hverfa í kófið. Elísa Ósk;*
»
Síður: 1 2 3 ... 28
|
Talning
Fyrir 1282 dögum
fara Sunna og Hanna til Mallorca!
|